22.04.13 - 11:17
Magnús Már Einarsson
Arnar Bragi í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

ÍBV hefur samið við Arnar Braga Bergsson en hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta staðfesti Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.
Arnar Bragi er miðjumaður fæddur árið 1993 en hann hefur verið í unglingaliði IFK Gautaborg undanfarin ár.
Arnar æfði með ÍBV fyrr í vetur og nú er ljóst að hann mun leika með liðinu í sumar.
Árið 2010 og 2011 spilaði Arnar samtals sjö landsleiki með U19 ára landsliði Íslands en hann hefur einnig leikið með U17 ára landsliðinu.
Arnar Bragi fór í aðgerð á dögunum og er því frá keppni í augnablikinu en hann mun síðan hefja leik með ÍBV.