Fotbolti.net
22.04.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson

West Ham fær ungan framherja frá Valencia (Staðfest)

West Ham fær ungan framherja frá Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur fengið spænska framherjann Toni Martinez í sínar raðir frá Valencia.

Hinn 18 ára gamli Martinez er í spænska U17 ára landsliðinu.

Undanfarin ár hefur Martinez raðað inn mörkum með unglingaliðum Valencia og það vakti áhuga West Ham.
„Þetta er frábært tækifæri og ég vonast til að gera það besta úr því að vera hjá svona stóru félagi,\" sagði Martinez.

Martinez mun formlega ganga í raðir West Ham þann 1. júlí en hann hefur þó þegar hafið æfingar með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.