22.04.22 - 20:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grótta fær Arnar Daníel frá Blikum (Staðfest)


Mynd: Grótta Knattspyrna


Mynd: Grótta Knattspyrna

<p>Hinn 18 ára Arnar Daníel Aðalsteinsson hefur skrifað undir lánssamning við Gróttu út tímabilið.</p>
Félagið staðfesti þetta í dag en hann kemur frá Breiðabliki. Hann hefur verið valinn á æfingar hjá u19 ára landsliðið í vetur.
Hann lék sjö leiki með Augnabliki í 3. deildinni á síðustu leiktíð.
Honum hefur verið hent í djúpu laugina en hann er í byrjunarliðinu hjá Gróttu sem er að spila gegn KM í Mjólkurbikarnum þessa stundina.
