22.04.22 - 06:00
Victor Pálsson
Kristófer Óskar í Magna (Staðfest)


Mynd: Magni


Mynd: Magni
Kristófer Óskar Óskarsson hefur skrifað undir samning við Magna Grenivík um að spila með liðinu í sumar.
Þetta tilkynnti félagið í gær en Kristófer er uppalinn Fjölnismaður og spilaði með Aftureldingu í fyrra.
Leikmaðurinn gerir eins árs samning við Magna en hann skoraði í gær gegn KF í Mjólkurbikarnum.
Kristófer er fæddur árið 2000 en hann var öflugur með Aftureldingu 2021 og skoraði þá átta mörk í 16 Lengjudeildarleikjum.
Hann lék einnig 13 leiki með Fjölni í efstu deild er liðið féll í næst efstu deild árið 2020.
