Fotbolti.net
22.04.26 - 17:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið ÍA og KA: Gabríel og Sveinn Margeir byrja

Grímsi áfram fjarri góðu gamni

Gabríel Snær byrjar sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu.

Gabríel Snær byrjar sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 18:00 tekur ÍA á móti KA í Akraneshöllinni. Leikurinn er liður í 3. umferð Bestu deildarinnar. ÍA er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina sína en KA er án stiga.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðabliki. Gabríel Snær Gunnarsson (2008) kemur inn í byrjunarliðið fyrir Guðmund Þórarinsson sem er fjarri góðu gamni eftir að hafa meiðst gegn Breiðabliki. Matthías Daði Gunnarsson og Aron Kristinn Zumbergs koma svo inn á bekkinn. Gabríel Snær er á leið til Elfsborg í sumar.
Flutti í 4. flokki frá foreldrunum til að elta drauminn
TENGT EFNI

Flutti í 4. flokki frá foreldrunum til að elta drauminn

Lestu um leikinn: ÍA 1 - 1 KA
Hallgrímur Mar Steingrímsson er áfram fjarri góðu gamni hjá KA, missir af sínum öðrum leik vegna mjaðmameiðsla.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Víkingi. Kári Gautason kemur inn fyrir Birgi Baldvinsson sem meiddist í síðasta leik og Sveinn Margeir Hauksson byrjar í stað Samuel Kroon sem er ekki með í dag. Jóan Símun Edmundsson kemur inn í hópinn eftir meiðsli og gæti spilað sinn fyrsta leik á tímabilinu. Sigurður Nói Jóhannsson og Dagbjartur Búi Davíðsson koma einnig inn í hópinn hjá KA.

Byrjunarlið ÍA

  • 1. Árni Marinó Einarsson (m)
  • 3. Johannes Björn Vall
  • 5. Baldvin Þór Berndsen
  • 7. Haukur Andri Haraldsson
  • 9. Viktor Jónsson
  • 11. Gísli Eyjólfsson
  • 15. Gabríel Snær Gunnarsson
  • 21. Böðvar Böðvarsson (f)
  • 22. Ómar Björn Stefánsson
  • 25. Markús Páll Ellertsson
  • 66. Jón Gísli Eyland Gíslason

Byrjunarlið KA

  • 3. Kári Gautason
  • 4. Rodrigo Gomes Mateo
  • 8. Jeppe Pedersen
  • 9. Sveinn Margeir Hauksson
  • 13. Steinþór Már Auðunsson
  • 14. Danijel Dejan Djuric
  • 16. Jakob Héðinn Róbertsson
  • 23. Markús Máni Pétursson
  • 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
  • 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
  • 44. Valdimar Logi Sævarsson
Sveinn Margeir byrjar sinn fyrsta leik eftir að hann var lánaður í KA frá Víkingi.

Sveinn Margeir byrjar sinn fyrsta leik eftir að hann var lánaður í KA frá Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.