Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
   mið 22. apríl 2026 21:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við þurfum að vera sáttir við punktinn hérna, það er erfitt að koma hingað, sérstaklega að spila inn í höllinni," sagði Steinþór Már Auðunsson, eða Stubbur eins og markvörður KA er oftast kallaður, eftir jafnteflið gegn ÍA í dag.

„Mér fannst ekki mikið að gera hjá mér í fyrri hálfleik, þeir komust í hættulegar stöður en mér fannst þeir ekkert fá einhver færi þannig nema skot í slá eða stöng. Það var aðeins meira að gera í seinni hálfleik, við lyftum liðinu ofar og þeir fóru svolítið á bakvið okkur. Þannig jú jú, það var eitthvað að gera."

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  1 KA

Stubbur var valinn næstbesti maður vallarins í Akraneshöllinni í dag, varði nokkrum sinnum mjög vel í leiknum og vörslurnar voru alls sex í leiknum.

Stigið í dag var það fyrsta hjá KA á þessu tímabili. „Við hefðum viljað vera með fleiri stig, hefðum getað sótt punkt á móti Stjörnunni og það er ekki gefið að sækja stig á móti Víkingunum. Við þurfum að taka þennan punkt og byggja ofan á hann."

„Mér fannst við alls ekki slakir í fyrstu tveimur leikjunum, en jú, þetta lítur út eins og við ætlum að vera hægir í gang aftur. En vonandi byggjum við á þetta og sækjum fleiri stig."

„Stefnan er að taka öll stigin gegn Keflavík. Við hefðum alltaf viljað sækja sigra í fyrstu tveimur heimaleikjunum, en við ætlum að vinna Keflvíkingana,"
segir Stubbur.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst
Slapp
banner
banner
banner