Fotbolti.net
22.05.14 - 10:57
Alexander Freyr Tamimi

Neil Lennon hættur með Celtic (Staðfest)

Neil Lennon er hættur með Celtic.

Neil Lennon er hættur með Celtic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Neil Lennon hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri skosku meistaranna í Celtic.

Lennon hefur stýrt liði Celtic undanfarin þrjú ár og gert þá að meisturum í öll skiptin.

Talið er að Lennon horfi til ensku úrvalsdeildarinnar og þess vegna hafi hann ákveðið að hætta með Celtic, í von um að fá eitthvað af lausu störfunum hinu megin við landamærin.
Lennon er Norður-Íri og á að baki 40 landsleiki fyrir þjóð sína. Celtic var fyrsta liðið sem hann þjálfaði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.