22.05.14 - 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Phil Bardsley tIl Stoke á frjálsri sölu (Staðfest)

Phil Bardsley.

Mynd: Getty Images

Phil Bardsley.

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarliðið Stoke City hefur staðfest komu varnarmannsinn Phil Bardsley frá Sunderland og skrifaði leikmaðurinn undir þriggja ára samning.
Samningur Bardsley hjá Sunderland rennur út 1. júlí og kemur hann því til Stoke á frjálsri sölu eftir að hafa hafnað nýjum samningi Sunderland.
Bardsley hefur verið til mála hjá Sunderland frá árinu 2008 og var einu sinni valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Hann var ekki í náðinni hjá Paolo Di Canio í upphafi leiktíðarinnar sem er nýlokið en tókst að vinna sér sæti í liðinu eftir komu Gus Poyet.
Alls lék hann 173 úrvalsdeldarleiki með Sunderland, en áður hafði hann spilað 8 leiki með Manchester United.