Þær fréttir bárust nú í kvöld að fjölgun þjóða á Heimsmeistaramótinu í Katar árið 2022 verði ekki að veruleika.
Þær hugmyndir voru uppi um að flýta fjölgun þjóða á HM 2026 til 2022 en Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA staðfesti nú í kvöld að það verði 32 þjóðir sem berjist um Heimsmeistaratitilinn í Katar árið 2022.
Árið 2026 tekur breytingin hins vegar gildi og þá verða 48 þjóðir sem leika í keppninni, HM 2026 fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Þessi hugmynd kom of seint upp á borðið og tíminn var orðinn of naumur til að koma þessari breytingu í gegn, hefði liðunum á HM 2022 verið fjölgað í 48 hefði það þýtt að einhverja leiki mótsins þyrfti að spila í nágrannalöndum Katar.
Athugasemdir