Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. maí 2020 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mariappa greindur með veiruna en líður mjög vel
Mariappa var greindur með kórónuveiruna.
Mariappa var greindur með kórónuveiruna.
Mynd: Getty Images
Nigel Pearson, knattspyrnustjóri Watford, segir að varnarmanninum Adrian Mariappa líði ótrúlega vel þó svo að hann hafi verið greindur með kórónuveiruna.

Lið ensku úrvalsdeildarinnar mættu aftur til æfinga í þessari viku, en lið eru byrjuð að æfa í litlum hópum. Áður en æfingar hófust voru leikmenn og starfsmenn félaga deildarinnar prófaðir fyrir kórónuveirunni og greindust þrír hjá Watford með veiruna. Mariappa og tveir starfsmenn eru með veiruna.

Allir þrír smituðu einstaklingarnir hjá Watford eru nú í sóttkví þar sem þeir verða í sjö daga áður en þeir fara í aðra sýnatöku.

Pearson segir í samtali við Sky Sports að Mariappa hafi litið ótrúlega vel út þegar hann mætti í sýnatökuna fyrr í vikuna, og að honum líði ótrúlega vel. „Þetta er dæmi um það hvernig veiran hefur mismunandi áhrif á fólk."

„Hann er núna í sóttkví í viku. Ég er viss um að það verði allt í góðu með hann þegar hann kemur aftur," sagði Pearson.

Mariappa er 33 ára gamall miðvörður sem hefur leikið með Watford frá 2016, en hann lék einnig með liðinu fyrstu ár ferilsins.
Athugasemdir
banner
banner