Nikita Chagrov hefur skrifað undir samning við Kórdrengi út næsta tímabil. Nikita er 27 ára gamall rússneskur markvörður.
Hann hefur verið að æfa með liðinu í svolítinn tíma en hann er að jafna sig af meiðslum. Samkvæmt vef KSÍ hefur hann ekki enn fengið leikheimild.
Kórdrengir hafa verið í markvarðarleit en félagið fékk Daða Frey Arnarsson á láni frá FH fyrr í mánuðinum.
„Kórdrengir eru spenntir fyrir því að Nikita sýni hvað í sér býr í sumar," segir í tilkynningu Kórdrengja.
Athugasemdir