22.05.26 - 22:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fótbolti.net ræddi við Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliða Vals, eftir sigur liðsins á KA í Bestu deildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Hemmi Hreiðars: Sætast í heimi
„Við vorum á stórum hluta að verjast og gerðum það á stórum köflum vel. Ég hefði viljað sjá okkur beittari í skyndisóknum sem við fengum möguleika á. Allt í allt 'solid' frammistaða," sagði Hólmar Örn.
KA var mikið með boltann í fyrri hálfleik.
„Það æxlaðist þannig. Við vorum svolítið mikið að leita að úrslitasendingum í fyrri hálfleik sem hefur verið mikið vopn hjá okkur í sumar. Við þurfum að finna jafnvægið í því hvenær við förum fram á við og hvenær við höldum í boltann."
Fótbolti.net heyrði einnig í uppalda Þórsaranum Jakobi Franz Pálssyni.
„Alltaf gaman að koma norður og sækja sigur á KA vellinum," sagði Jakob Franz.