Fotbolti.net
22.06.13 - 11:15
Elvar Geir Magnússon

Luis Alberto orðinn leikmaður Liverpool (Staðfest)

Luis Alberto í búningi Liverpool.

Luis Alberto í búningi Liverpool.

Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

<i>„Ég er ánægðasti maðurinn á jörðinni. Mér finnst ég vera í draumi,\"</i> segir framherjinn Luis Alberto sem hefur gengið frá félagaskiptum í Liverpool.

Þessi tvítugi leikmaður kemur frá Sevilla en talið er að kaupverðið sé 6,8 milljónir punda. Hann var lánaður til Barcelona B en Börsungar ákváðu að kaupa ekki spænska U21-landsliðsmanninn
„Ég kem hingað vegna knattspyrnustjórans og leikstílsins,\" segir Alberto.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool: „Hann hefur rétta leikstílinn og hugarfarið til að verða leikmaður Liverpool. Ég hlakka til að starfa með honum.\"

Alberto var 18 ára þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir Sevilla í apríl 2011 en síðan hefur hann aðeins leikið sjö leiki fyrir félagið. Á síðasta tímabili skoraði hann ellefu mörk í 38 leikjum fyrir Barcelona B.

Þá er það að frétta úr herbúðum Liverpool að í komandi viku verður líklega gengið frá kaupum á Simon Mignolet, markverði frá Sunderland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.