Fotbolti.net
22.06.13 - 14:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Roma kaupir Mattia Destro (Staðfest)

Roma kaupir Mattia Destro (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma er búið að tryggja sér þjónustu sóknarmannsins Mattia Destro fyrir samtals 16 milljónir evra.

Destro kom til Roma á lánssamning í fyrra þar sem félagið borgaði rúmlega 11 milljónir fyrir ódýran kauprétt þetta sumar.
Leikmaðurinn var mikið meiddur en skoraði þó 11 mörk í 26 leikjum, aðeins 6 í 21 deildarleik en 5 mörk í 5 bikarleikjum.

Destro var partur af landsliði Ítalíu sem komst í úrslitaleik EM U21 og tapaði þar fyrir Spáni, en hann er mjög leikreyndur þrátt fyrir ungan aldur eftir eitt tímabil hjá Genoa og tvö tímabil hjá Siena, áður en hann fór til Roma.

Heimild: Football-Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.