22.06.14 - 19:45
Þórður Már Sigfússon
Birkir aftur til Pescara (Staðfest)

Birkir í leik með Sampdoria síðasta vetur.

Mynd: Getty Images

Birkir í leik með Sampdoria síðasta vetur.

Mynd: Getty Images
Ítalska úrvalsdeildarliðið Sampdoria hefur ákveðið að afsala sér helmingshlut félagsins í landsliðsmanninum Birki Bjarnasyni og hefur hann því gengið aftur í raðir Pescara. Frá þessu er greint á heimasíðum beggja félaga.
Pescara seldi Sampdoria helmingshlut í Birki síðasta sumar og gerði leikmaðurinn fjögurra ára samning við félagið. Hann náði hins vegar aldrei að festa sig í sessi í liðinu og þótti líklegt að hann myndi leita á önnur mið í sumar.
Eftir næsta keppnistímabil mun sameiginlegt eignarhald á leikmönnum verða óleyfilegt á Ítalíu og gæti sú staðreynd einnig hafa flýtt fyrir ákvörðun Sampdoria um að losa sig við Birki.
Búast má við því að dvöl hans hjá Pescara verði stutt að þessu sinni en félagið, sem endaði í 15. sæti í Serie B á síðustu leiktíð, mun væntanlega reyna að selja leikmanninn í sumar.