Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 22. júní 2021 02:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: Einum færri í 40 mínútur en lönduðu sigrinum
Birgir Þór skoraði sigurmark KÁ. Hér er hann í leik með Haukum.
Birgir Þór skoraði sigurmark KÁ. Hér er hann í leik með Haukum.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Björninn 0 - 1 KÁ
0-1 Birgir Þór Þorsteinsson ('41)
Rautt spjald: Jóhann Karl Ásgeirsson, KÁ ('56)

KÁ hafði betur gegn Birninum í toppbaráttuslag í C-riðli 4. deildar karla í gærkvöld.

KÁ tók forystuna þegar fyrri hálfleikur var næstum því á enda kominn. Birgir Þór Þorsteinsson skoraði markið og sá til þess að KÁ leiddi 1-0 í hálfleik.

Snemma í seinni hálfleiknum dró til tíðinda er Jóhann Karl Ásgeirsson, leikmaður KÁ, fékk gult spjald á 55. mínútu og annað gult mínútu síðar. Honum var vísað af velli og KÁ einum færri í 40 mínútur sirka.

Þrátt fyrir það þá tókst Hafnarfjarðarfélaginu að halda út og landa sigrinum. Mikilvæg þrjú stig í hús fyrir KÁ sem er á toppi riðilsins með 17 stig eftir sjö leiki. Björninn er með 12 stig í fjórða sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner