Camavinga ekki að hugsa sér til hreyfings

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski miðjumaðurinn Eduardo Camavinga er ekki að íhuga það að fara frá Real Madrid í sumar.
Spænski miðillinn Sport segir Real Madrid vera opið fyrir því að selja Eduardo Camavinga í sumar fyrir um 60 milljónir evra.
Fjölmörg félög fylgjast með stöðu hans og er Paris Saint-Germain sagt fremst í röðinni. Camavinga sjálfur er þó ekki sagður hugsa sér til hreyfings.
Franski miðjumaðurinn er skuldbundinn Real Madrid og vill vera áfram hjá félaginu, en samningur hans gildir til sumarsins 2029.
Camavinga, sem er 23 ára gamall, var ekki valinn í franska landsliðshópinn fyrir HM. Hann átti ekki gott tímabil með Real Madrid sem hefur verið að ganga í gegnum titlaþurrð.