Fotbolti.net
21.06.26 - 23:14
Snæbjört Pálsdóttir

„Við ætlum okkur að vera á toppnum og við ætlum okkur að komast upp“

Auglýsing
Markmaðurinn Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir var ekki sátt við frammistöðu Hauka í 1-1 jafntefli gegn KR en tekur stigið

Markmaðurinn Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir var ekki sátt við frammistöðu Hauka í 1-1 jafntefli gegn KR en tekur stigið

Canon

Mynd: Haukar

Hertz

Haukar héldu toppsæti Lengjudeildar kvenna þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við KR í toppslag liðanna á Meistaravöllum í kvöld. Heimakonur byrjuðu betur og komust yfir strax á 6. mínútu en Haukakonur sýndu karakter undir lokin þegar Berglind Þrastardóttir jafnaði metin og tryggði toppliðinu mikilvægt stig.

Markvörður Hauka, Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir, átti góðan leik á milli stanganna og varði ítrekað vel þegar KR sótti að marki gestanna. Þrátt fyrir að stiginu hafi verið vel tekið var hún ekki fyllilega sátt við frammistöðu liðsins.

„Ég hefði viljað fá aðeins betri frammistöðu frá liðinu en stig er stig, þannig við tökum þessu,“ sagði Viktoría eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Haukar

Haukakonur áttu erfitt með að finna sitt hefðbundna spil í fyrri hálfleik og Viktoría telur að stress hafi haft áhrif á leik liðsins.

„Við erum svolítið stressaðar held ég á boltanum og erum mjög mikið að fá hann upp en erum ekki alveg að tengja uppi. Þannig að við erum svolítið bara að skjóta honum eitthvert. Við erum að spila með falska níu í dag líka, þannig við erum mikið að senda hann upp en svo er enginn uppi.“


Varnarnaglinn Maggý Lárentínusardóttir var ekki með í kvöld og segir Viktoría að reynsla hennar skipti miklu máli fyrir liðið.

„Hún er bara mjög mikilvæg. Hún kemur inn með svona reynslu sem við hinar höfum kannski ekki alveg eins og er. Það er bara mjög mikilvægt, hún heldur stöðunni og er ákveðin.“


Aðeins einn leikur er eftir hjá Haukum þar til félagsskiptaglugginn opnar og Sara Björk Gunnarsdóttir verður lögleg með Haukum. 

„Sara er náttúrulega rosalegur leikmaður sem er ekki bara gott fyrir okkur í Haukum heldur bara kvennafótboltann yfir höfuð. Að fá svona stóran leikmann inn í 1. deildina er risastórt fyrir okkur og mun örugglega hjálpa okkur mjög mikið. Bæði innan vallar og líka bara hugarfarið, hún er að koma með mikla reynslu.“


Viktoría var á dögunum valin í lokahóp U19 landsliðs Íslands sem tekur þátt í lokamóti Evrópumótsins síðar í mánuðinum.

„Ég er mjög spennt, bara að koma saman með stelpunum. Við erum með mjög góðan hóp og erum mjög góðar vinkonur og tengjum mjög vel saman. Þannig það er bara stórt, skemmtilegt og spennandi verkefni fram undan.“


Þrátt fyrir að Haukar hafi ekki sett sér skýrt markmið um að sitja í toppsætinu þá er markmiðið nú ljóst.

„Fyrir tímabilið ákváðum við að setja ekkert markmið um hvar við ætluðum að standa. Við ætluðum bara að byggja á frammistöðu, við hugsum mjög mikið um frammistöðu.“

En hún leyndi því ekki að liðið vill halda sér á toppnum út tímabilið.

„Það er bara geggjað að vera á toppnum. Við ætlum okkur að vera þar og við ætlum okkur að komast upp.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.