HM: Sögulegur sigur Egypta sem tylltu sér á toppinn

Mohamed Salah skoraði og lagði upp í sögulegum sigri Egypta

Mynd: EPA

Finn Surman kom Nýsjálendingum yfir snemma leiks

Mynd: EPA

Mostafa Ziko var frábær

Nýja-Sjáland 1 - 3 Egyptaland
1-0 Finn Surman ('15 )
1-1 Mostafa Ziko ('58 )
1-2 Mohamed Salah ('67 )
1-3 Trezeguet ('82 )
1-0 Finn Surman ('15 )
1-1 Mostafa Ziko ('58 )
1-2 Mohamed Salah ('67 )
1-3 Trezeguet ('82 )
Mohamed Salah skoraði og lagði upp þegar Egyptar unnu sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramóti frá upphafi, 3-1 gegn Nýja-Sjálandi í G-riðli á BC Place í Vancouver í nótt.
Jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en Egyptum leið aðeins betur með boltann en Nýsjálendingum.
Nýsjálendingar komu verulega á óvart í opnunarleik sínum gegn Íran, þar sem þeir gerðu 2-2 jafntefli, og það voru þeir sem brutu ísinn á 15. mínútu.
Elijah Just vann þá hornspyrnu sem Tim Payne tók inn á miðjan teiginn. Þar var Finn Surman einn og óvaldaður og miðvörðurinn skallaði boltann af krafti í netið.
Það fór aðeins um Egypta í kjölfarið og skömmu síðar fékk Just færi sem Oufa Shobeir varði.
Omar Al Ali, dómari leiksins, var óvenju spjaldaglaður í fyrri hálfleik og gaf þrjú gul spjöld á fyrstu 35 mínútunum, tvö á Nýja-Sjáland og eitt á Egypta.
Eftir vatnspásuna fóru Egyptar að ógna meira. Omar Marmoush átti skot sem Max Crocombe varði og Salah skaut aukaspyrnu framhjá markinu.
Egyptar voru líklegri á lokamínútum fyrri hálfleiks en það vantaði meiri kraft og gæði á síðasta þriðjungnum. Nýsjálendingar lögðu áherslu á að halda forystunni inn í hálfleikinn og sú áætlun gekk fullkomlega upp.
Egyptar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti. Salah fékk þeirra besta færi fram að því þegar hann mætti sendingu Mohamed Hany en Crocombe varði áður en vörnin náði að hreinsa. Þá átti Marmoush hörkuskot úr aukaspyrnu sem fór þó vel framhjá.
Nýsjálendingar svöruðu og voru nálægt því að bæta við öðru marki á 52. mínútu. Marko Stamenic kom með háan bolta inn á teiginn og Callum McCowatt reyndi að koma krafti í skallann. Hann náði aðeins að flikka boltanum áfram á markið en það dugði til að þvinga Shobeir í frábæra vörslu.
Það var engu að síður alltaf einhver tilfinning fyrir því að jöfnunarmark Egypta væri í kortunum og það kom á 58. mínútu. Mostafa Ziko skallaði þá frábæra fyrirgjöf Hany í netið af krafti og allt var jafnt.
Meðbyrinn var með Egyptum sem héldu áfram að sækja og skömmu síðar skoraði Salah sitt fyrsta mark á þessu heimsmeistaramóti.
Salah fékk boltann hægra megin, spilaði skemmtilegt þríhyrningsspil við Ziko og setti boltann síðan niðri í vinstra hornið.
Önnur vatnspása leiksins kom skömmu eftir markið og virtist koma á slæmum tíma fyrir Egypta, sem voru komnir í góðan gír á meðan Nýsjálendingar voru enn að ná áttum.
Það hafði þó engin áhrif á Egypta sem bættu þriðja markinu við á 82. mínútu. Trezeguet, sem hafði komið inn af bekknum nokkrum mínútum áður, var þá mættur á nærsvæðið eftir hornspyrnu Salah og stangaði boltann í netið.
Þetta var 24. landsliðsmark Trezeguet og um leið stoðsending hjá Salah, sem var tekinn af velli skömmu síðar í annað sinn á mótinu.
Egyptar sáu leikinn út og unnu sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramóti og tylla sér á topp G-riðils með fjögur stig. Þeir eru í afar vænlegri stöðu fyrir lokaumferðina þar sem þeir mæta Íran.
Íran er í öðru sæti með tvö stig, rétt eins og Belgar, sem hafa skorað færri mörk og sitja því í þriðja sæti. Nýsjálendingar eru á botninum með eitt stig og þurfa að vinna Belgíu í lokaumferðinni til að eiga möguleika á sæti í 32-liða úrslitum.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!