Gunnar Heiðar: Mér líður eins og ég hafi tapað leiknum
Auglýsing

Gunnar Heiðar þjálfari HK

Mynd: HK

Gunnar Heiðar þjálfari HK

Mynd: HK

HK og Grindavík áttust við í 10. umferð Lengjudeildar karla í kvöld. Leikurinn endaði 2-2 sem var mjög svekkjandi fyrir HK menn. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Gunnar Heiðar eftir svekkjandi jafntefli.
Aðspurður um úrslitin sagði hann liðið svekkt með að fá aðeins eitt stig úr leiknum.
„Já, þetta er svekkjandi. Þetta hefur verið allt öðruvísi leikur. Við fengum svo mörg færi, skutum í stöng og klikkuðum á algjörum dauðafærum á mjög mikilvægum augnablikum þegar við vorum að stjórna leiknum. Við erum mjög svekktir að fá ekki meira út úr þessum leik því við gerðum klárlega nóg og eiginlega meira en nóg til að vinna leikinn."
Aðspurður um færanýtinguna tók hann undir að boltinn hefði ekki alltaf viljað inn.
„Já, ég held að það hafi sést að við vorum að skapa fleiri og betri færi í þessum leik. Við sköpuðum okkur mörg tækifæri og fáum svo mörk á okkur sem halda þeim inni í leiknum. Þeir opnuðu okkur eiginlega ekki neitt en við vorum með boltann og að búa til færin. En í fótbolta þarf að nýta færin sem maður fær, sérstaklega þegar maður er með yfirhöndina í leiknum. Ef við hefðum náð þriðja markinu hefðum við unnið leikinn."
Að lokum var hann spurður hvort jöfnunarmarkið hefði verið mikið högg fyrir liðið.
„Já, klárlega. Okkur gekk mjög vel og við vorum virkilega góðir. Við vorum með algjöra stjórn á þessum leik. En þegar við fáum þetta mark á okkur dettum við aðeins niður í gír. Við lögðum mjög mikið á okkur til að vinna þennan leik. Fótbolti er 90 mínútur plús og menn þurfa að vera á tánum í 90 mínútur plús til að uppskera það sem þeir sá. Því miður gerðum við það ekki."