Fotbolti.net
21.06.26 - 23:46
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeild kvenna: Jafnt í toppbaráttuslag - Fyrsti sigur Tindastóls

Haukar halda toppsætinu

Haukar halda toppsætinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Haukar og KR gerðu 1-1 jafntefli í toppslag Lengjudeildar kvenna í dag.
Katla Guðmundsdóttir kom KR-ingum á bragðið á 6. mínútu leiksins með þrumuskoti af vítateigslínunni.

KR-ingar gátu hæglega verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Katla átti skot í þverslá og þá næstum því búin að skora með hælspyrnu, en hafði ekki heppnina með sér.

Þetta átti eftir að reynast KR-ingum dýrkeypt því þegar tíu mínútur voru eftir jafnaði Berglind Þrastardóttir fyrir Hauka. Þær höfðu verið að hóta þessu í einhvern tíma og á endanum kom jöfnunarmarkið.

Haukar eru á toppnum með 17 stig en KR-ingar í öðru sæti með 16 stig.

Tindastóll vann FHL, 3-1. Amparo Vega, Harpa Sif Hreiðarsdóttir og Rita Lang skoruðu mörk Stólanna sem voru að vinna fyrsta deildarleik sinn á tímabilinu. Þær eru áfram í neðsta sæti en nú með þrjú stig á meðan FHL er með fjögur stig.

Selfyssingar unnu 3-0 sigur á Gróttu. Olga Lind Gestsdóttir skoraði tvennu og Védís Ösp Einarsdóttir eitt. Selfoss er í 5. sæti með 10 stig en Grótta í 3. sæti með 15 stig.

Alma Mathiesen var þá hetja HK í 1-0 sigrinum á Keflavík. Hún skoraði sigurmarkið á 14. mínútu. HK er í 8. sæti með 7 stig en Keflavík í 7. sæti með 7 stig.

KR 1 - 1 Haukar
1-0 Katla Guðmundsdóttir ('6 )
1-1 Berglind Þrastardóttir ('80 )
Lestu um leikinn

Tindastóll 3 - 1 FHL
1-0 Amparo Delgado Vega ('16 )
1-1 Peyton Marie Felton ('39 )
2-1 Harpa Sif Hreiðarsdóttir ('64 )
3-1 Rita Feist Lang ('82 )

Selfoss 3 - 0 Grótta
1-0 Olga Lind Gestsdóttir ('24 )
2-0 Védís Ösp Einarsdóttir ('50 )
3-0 Olga Lind Gestsdóttir ('54 )

Keflavík 0 - 1 HK
0-1 Alma Mathiesen ('14 )
Tindastóll vann langþráðan sigur

Tindastóll vann langþráðan sigur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar7+717
2KR7+816
3Grótta7+715
4ÍA7+610
5HK7+210
6Selfoss7010
7Völsungur708
8Keflavík7+17
9FHL7-54
10Tindastóll7-263
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.