Fotbolti.net
22.07.13 - 13:12
Hafliði Breiðfjörð

Hannes samdi vð Grödig í Austurríki (Staðfest)

Hannes samdi vð Grödig í Austurríki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Framherjinn Hannes Þorsteinn Sigurðsson er kominn í austurrísku úrvalsdeildina en hann samdi um helgina við SC Grödig. Þetta staðfesti hann á Twitter.
,,Komst um helgina að samkomulagi við SV Grödig í austurrísku úrvalsdeildinni um 2 ára samning og mun ég flytja þangað á miðvikudaginn,\" tikynnti Hannes á Twitter í hádeginu.

Hannes hefur verið á mála hjá Mjallby í Svíþjóð en hann samdi við félagið í apríl um að leika með þeim út júlí mánuð.

Hannes lék í fyrra með Atyrau í Kasakstan. Í febrúar var Hannes nálægt því að semja við Inverness í Skotlandi en meiðsli komu í veg fyrir samninga.

Hann var þar áður með FH en lék með GIF Sundsvall frá 2008 til 2011. Hann hefur einnig leikið með Viking, Stoke, Bröndby, Spartak Nalchik og Atyrau á atvinnumannaferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.