Í dag var tilkynnt að Emile Smith Rowe væri búinn að skrifa undir nýjan samning við Arsenal. Hann mun leika í treyju númer tíu á komandi leiktíð.
Aston Villa hafði áhuga á Smith Rowe og bauð tvisvar sinnum í leikmanninn í sumar en Arsenal neitaði báðum tilboðunum.
Aston Villa hafði áhuga á Smith Rowe og bauð tvisvar sinnum í leikmanninn í sumar en Arsenal neitaði báðum tilboðunum.
Smith Rowe er tvítugur og lék 33 leiki með Arsenal á síðustu leiki og skoraði í þeim fjögur mörk.
Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem á tvo leiki fyrir U21 landslið Englands.
Smith Rowe skrifar undir langtímasamning en gamli samningurinn átti að renna út eftir tvö ár.
New season.
— Arsenal (@Arsenal) July 22, 2021
New contract.
New number.
✍️ @emilesmithrowe pic.twitter.com/DT13LjBD1B
Athugasemdir