Fotbolti.net
22.07.26 - 00:10
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Fór aldrei í bikarúrslit með Val en gerir það með litla bróður í Aftureldingu

Auglýsing
Fór aldrei í bikarúrslit með Val en gerir það með litla bróður í Aftureldingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mjólkurbikarinn

Afturelding er komið í úrslit bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Fylki. Leikmaður liðsins og fyrrum landsliðsmaður Birkir Már Sævarsson ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.

Birkir spilaði 120 mínútur í dag, hann var smá þreyttur eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fylkir 4 - 5 Afturelding

„Ég var alveg búinn. Gerði akkúrat nóg til þess að gefast ekki upp en ég náði að halda út sem betur fer."

Hvar á listanum varst þú að taka vítaspyrnu?

„Ég held að ég hafi verið næstur annaðhvort ég eða Arnar. Eins og ég segi ég var búin í löppunum að það var fínt að ég þurfti ekki að taka."

„Ekkert stressaður, fá betri spyrnumenn og aðeins ferskari til þess að taka víti."

Birkir segir að liðin séu svipuð.

„Já, virðist vera. Mjög keimlík lið, þetta var það jafnt að það þurfti vító til þess að útkljá þetta. Það er bara fifty fifty, mjög svipuð lið myndi ég halda."

Hvernig líst þér á að spila á móti Breiðablik í úrslitum?

„Æðislegt að fá að fara í bikarúrslit. Ég hélt alltaf að það yrði með Val, það gerðist ekki, þannig að ég fékk að gera það með Aftureldingu í staðinn. Það er frábært að fá að gera það með litla bróður mínum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.