Fotbolti.net
22.08.13 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Charis Mavrias til Sunderland (Staðfest)

Charis Mavrias til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá kaupunum á gríska vængmanninum Charis Mavrias frá Panathinaikos. Kaupverðið á þessum 19 ára gríska landsliðsmanni var ekki gefið upp.

Mavrias skrifaði undir þriggja ára samning við Sunderland en hann lék sinn fyrsta Meistaradeildarleik aðeins 16 ára gamall 2010.
Hann hefur leikið 59 leiki í Grikklandi fyrir Panathinaikos og 11 Evrópuleiki fyrir félagið og skorað sex mörk.

Þá hefur hann leikið tvo landsleiki fyrir A-landslið Grikklands og spilað fyrir öll yngri landslið þjóðarinnar. Hann er ellefti leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar og fær treyju númer 35.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.