Fotbolti.net
22.08.13 - 16:15
Magnús Már Einarsson

Scott Sinclair til WBA (Staðfest)

Scott Sinclair til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Scott Sinclair, kantmaður Manchester City, hefur gengið til liðs við WBA á láni út tímabilið.
Hinn 24 ára gamli Sinclair kom til Manchester City frá Swansea síðastliðið sumar.

Hann var hins vegar einungis tvívegis í byrjunarliði í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og ljóst var fyrir þetta tímabil að tækifæri hans yrðu fá.

Steve Clarke, stjóri WBA, ákvað að nýta sér það en hann þekkir leikmanninn síðan hjá Chelesa á sínum tíma.

Sinclair mun leika í treyju númer tíu hjá WBA en hann gæti spilað með liðinu gegn Everton á laugardag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.