Fotbolti.net
22.08.14 - 09:38
Magnús Már Einarsson

Ólafur Kristjáns fær Guðjón til Nordsjælland (Staðfest)

Guðjón í leik með KR fyrir nokkrum árum.

Guðjón í leik með KR fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Nordsjælland, hefur fengið Guðjón Baldvinsson til félagsins.

Guðjón mun ganga í raðir Nordsjælland um áramót þegar samningur hans hjá sænska félaginu Halmstad rennur út.
,,Mjög ánægður með að hafa skrifað undir samning við @FCNordsjaelland sem gildir frá 1, janúar,\" sagði Guðjón á Twitter í dag.

,,Hlakka til að eiga góða tíma í rauðu treyjunni.\"

Guðjón hefur leikið með Halmstad síðan árið 2012 en hann kom til félagsins frá KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.