Það kemur í ljós eftir æfingu Arsenal á morgun hvort Mesut Özil og Granit Xhaka verði í nægilega góðu standi til að spila gegn Liverpool á laugardag.
Özil var fjarri góðu gamni gegn Burnley um síðustu helgi vegna veikinda á meðan Xhaka hefur verið að glíma við meiðsli á fæti.
Özil var fjarri góðu gamni gegn Burnley um síðustu helgi vegna veikinda á meðan Xhaka hefur verið að glíma við meiðsli á fæti.
„Við skoðum þá á morgun. Þeir æfðu í dag en við þurfum að taka síðustu æfinguna á morgun," sagði Unai Emery, stjóri Arsenal.
„Ég er jákvæður fyrir hönd þessara leikmanna en ég vil ekki ákveða neitt í dag því að hlutirnir gætu breyst á morgun."
Özil gæti spilað sinn fyrsta leik á tímabilinu en í fyrsta leiknum gegn Newcastle var hann utan hóps af öryggisástæðum eftir að ræningjar réðust á hann og Sead Kolasinac.
Athugasemdir