Gabríel Hrannar Eyjólfsson hefur skrifað undir samning við Vestra í Lengjudeildinni en hann kemur til félagsins frá Gróttu.
Gabríel er miðjumaður fæddur árið 1999 en hann mun leika með Vestra tímabundið á láni.
Leikmaðurinn hefur komið sjö sinnum við sögu í Pepsi Max-deildinni í sumar og skorað einnig eitt mark í Mjólkurbikarnum.
Gabríel spilaði með KV í 3. deildinni á láni í fyrra og skoraði þar þrjú mörk í 20 leikjum.
Vestri situr í sjötta sæti Lengjudeildarinnar og er með 15 stig eftir 10 umferðir. Gabríel gæti mögulega spilað sinn fyrsta leik fyrir Vestra gegn Víkingi Ólafsvík á sunnudag.
Athugasemdir



