Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   lau 22. ágúst 2020 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tristan Freyr lánaður í Keflavík (Staðfest)
Lengjudeildin
Tristan Freyr fremstur á myndinni.
Tristan Freyr fremstur á myndinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík, topplið Lengjudeildarinnar, hefur krækt í Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni.

Tristan kemur á láni til Keflavíkur yfirstandandi leiktíð.

Tristan er 21 árs gamall og getur leikið sem bæði bakvörður og kantmaður vinstra megin. Hann hefur á þessu tímabili spilað einn leik með Stjörnunni og var sá leikur í Mjólkurbikarnum. Í fyrra spilaði hann 22 leiki fyrir KFG í 2. deild.

Keflavík á útileik við Aftureldingu í Lengjudeildinni klukkan 16:00 í dag. Tristan gæti þar verið í leikmannahópi Keflavíkur, sem er sem fyrr segir á toppi Lengjudeildarinnar.
Slapp
banner
banner