Fotbolti.net
22.08.26 - 10:26
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Hull og Man Utd: Santos og Tielemans byrja - Rashford og fleiri stór nöfn á bekknum

Andrey Santos og Youri Tielemans eru báðir á miðjunni

Andrey Santos og Youri Tielemans eru báðir á miðjunni

Canon

Mynd: Samsett

Manchester United heimsækir Hull City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á MKM-leikvanginum í Hull klukkan 11:30 í dag.
Þrír leikmenn þreyta frumraun sína með nýliðunum í dag. Það eru markvörðurinn Kostas Tzolakis, sem kom frá Olympiakos, varnarmaðurinn Nobel Mendy frá Rayo Vallecano og Elliot Stroud, sem kom frá Svíþjóðarmeisturum Mjällby.

Michael Carrick stillir upp áhugaverðu liði hjá Manchester United. Noussair Mazraoui, Harry Maguire, Ayden Heaven og Luke Shaw mynda fjögurra manna varnarlínu.

Nýju mennirnir Youri Tielemans og Andrey Santos eru á miðjunni með Bruno Fernandes fyrir framan sig. Patrick Dorgu, Matheus Cunha og Bryan Mbeumo skipa síðan sóknarlínuna.

Nokkur stór nöfn eru á varamannabekknum, þar á meðal Lisandro Martinez, Kobbie Mainoo, Benjamin Sesko, Diogo Dalot og Marcus Rashford. Carrick hefur því úr mörgum öflugum kostum að velja.

Hull City: Tzolakis; Coyle, Egan, Ajayi, Mendy, Giles; Slater, Crooks; Belloumi, Stroud; McBurnie

Manchester United: Lammens; Mazraoui, Maguire, Heaven, Shaw; Tielemans, Andrey Santos; Dorgu, Bruno Fernandes, Cunha; Mbeumo.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.