22.08.26 - 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Stefan Tufegdzic til Malmö (Staðfest)

Mynd: Instagram

Mynd: Instagram
Sóknarmaðurinn Stefan Tufegdzic er genginn í raðir sænska stórliðsins Malmö frá Val.
Stefan er 16 ára gamall og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Val gegn Fram í síðasta mánuði.
Hann fór til reynslu hjá Malmö í vetur og heillaði stjórnarmenn og þjálfara félagsins. Nú hefur hann gengið formlega í raðir sænska stórliðsins.
Framherjinn greindi sjálfur frá félagaskiptunum á Instagram.
„Ánægður með að hafa skrifað undir hjá Malmö FF,“ skrifaði Stefan.
Íslendingarnir hjá Malmö eru þar með orðnir þrír. Alexander Ingi Arnarsson leikur með U19 ára liðinu og landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen er í aðalliðshópnum.
Stefan hefur raðað inn mörkum með yngri flokkum Vals undanfarin ár. Hann er sonur Srdjan Tufegdzic, sem hefur þjálfað Val, Grindavík og KA hér á landi.
Tufegdzic stýrði síðast Värnamo í sænsku B-deildinni en hafði þar áður þjálfað Öster og Skövde.