Fotbolti.net
22.08.26 - 00:24
Ívan Guðjón Baldursson

Karólína Lea með sigurmarkið - Glódís skoraði

Karólína Lea með sigurmarkið - Glódís skoraði
Canon

Mynd: Inter

Kvennaboltinn
Í dag var nóg um að vera hjá atvinnukonunum okkar sem leika erlendis og skoraði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eina markið í sigri hjá Inter fyrr í kvöld.
Inter heimsótti Parma í fyrstu umferð Serie A bikarsins og skoraði Karólína í upphafi síðari hálfleiks.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir var á sínum stað á milli stanga Inter og þá byrjaði Birta Georgsdóttir í fremstu víglínu hjá Parma, en tókst ekki að skora framhjá Cecilíu.

Glódís Perla Viggósdóttir skoraði þá í þægilegum sigri hjá Þýskalandsmeisturum FC Bayern í fyrstu umferð á nýju deildartímabili í Þýskalandi.

Glódís er fyrirliði Bayern og skoraði þriðja markið í 1-4 sigri. Klara Bühl og Sophie Proost komust einnig á blað ásamt Pernille Harder, sem átti líka stoðsendingu.

Í efstu deild í Noregi lenti Brann undir snemma leiks en tókst að snúa stöðunni sér í vil og setti Brenna Lovera þrennu í seinni hálfleik.

Brennu var skipt inn af bekknum á 57. mínútu og gerði hún sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk. Diljá Ýr Zomers kom einnig inn af bekknum í 5-1 sigri.

Brann trónir á toppi deildarinnar með 38 stig eftir 14 umferðir, átta stiga forystu á Rosenborg sem situr í öðru sæti.

Í sænska boltanum skildu Íslendingaliðin Malmö og Hammarby jöfn 1-1.

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í varnarlínu Hammarby sem er í öðru sæti, með 38 stig eftir 15 umferðir. Hammarby er einu stigi á eftir BK Häcken sem er á blússandi siglingu og með leik til góða.

Hlín Eiríksdóttir var allan tímann í sóknarlínu Malmö.

Að lokum vann Íslendingalið Anderlecht æfingaleik gegn franska liðinu Le Havre án vandræða, lokatölur 4-1. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir eru á mála hjá belgíska stórveldinu.

Parma 0 - 1 Inter
0-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('47)

Union Berlin 1 - 4 FC Bayern
0-1 Klara Buhl ('26)
0-2 Pernille Harder ('47)
0-3 Glódís Perla Viggósdóttir ('60)
1-3 Nele Bauereisen ('79)
1-4 Sophie Proost ('90)

Brann 5 - 1 Roa
0-1 Mina Folland ('4)
1-1 Karoline Haugland ('45+1)
2-1 Lauren Davidson ('51)
3-1 Brenna Lovera ('65)
4-1 Brenna Lovera ('74)
5-1 Brenna Lovera ('76)

Anderlecht 4 - 1 Le Havre
Karólína Lea með sigurmarkið - Glódís skoraði
Canon

Mynd: EPA

Karólína Lea með sigurmarkið - Glódís skoraði
Canon

Mynd: Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.