Fotbolti.net
21.08.26 - 23:25
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Nítján mörk í tveimur leikjum

2. deild kvenna: Nítján mörk í tveimur leikjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það fóru tveir leikir fram í 2. deild kvenna fyrr í kvöld og voru nítján mörk skoruð.
Flest mörkin litu dagsins ljós í stórsigri ÍR gegn Smára á meðan KÞ vann nauman sigur á Augnablik.

ÍR skoraði tíu mörk gegn Smára í neðsta hluta deildarinnar á meðan KÞ vann 2-3 í Fífunni og siglir áfram lygnan sjó um miðja deild.

Tara Dís Ármann var atkvæðamest með þrennu í liði ÍR á meðan Emma Sóley Arnarsdóttir var hetja KÞ. Katrín Ásta Benjamínsdóttir Wheat setti tvennu í tapi Augnabliks.

ÍR 10 - 4 Smári
1-0 Tara Dís Ármann ('11)
2-0 Dagný Heiða Vilhjálmsdóttir ('15)
3-0 Hildur Eva Hinriksdóttir ('19)
3-1 Inga Júlíana Jónsdóttir ('20)
4-1 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('25)
5-1 Hildur Eva Hinriksdóttir ('33)
6-1 Tara Dís Ármann ('42)
7-1 Jóhanna Elísabet Guðmundsdóttir ('47)
8-1 Tara Dís Ármann ('51)
8-2 Rósa Björk Borgþórsdóttir ('53)
8-3 Kristín Inga Vigfúsdóttir ('56)
9-3 Ragnheiður Björk Ragnarsdóttir ('62)
9-4 Sunna Freysdóttir, sjálfsmark ('72)
10-4 Hildur Eva Hinriksdóttir ('82)

Augnablik 2 - 3 KÞ
1-0 Katrín Ásta Benjamínsd. Wheat ('9)
1-1 Emma Sóley Arnarsdóttir ('33)
2-1 Katrín Ásta Benjamínsd. Wheat ('43)
2-2 Steinunn Lára Ingvarsdóttir ('75)
2-3 Emma Sóley Arnarsdóttir ('91)
2. deild kvenna: Nítján mörk í tveimur leikjum
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.