Fotbolti.net
21.08.26 - 22:41
Sigurjón Árni Torfason

Maggi: Ég vona að við fáum bara stemningu í bæjarhátíðarvikunni

Auglýsing
Maggi var eðlilega sáttur með stórsigur í Þorlákshöfn!

Maggi var eðlilega sáttur með stórsigur í Þorlákshöfn!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Afturelding heimsótti Ægi í Þorlákshöfn í kvöld í 20. umferð Lengjudeildar karla, en leikið var á Geo-Salmo vellinum. Gestirnir úr Mosfellsbænum voru með mikla yfirburði og unnu að lokum sannfærandi 7-0 sigur. Erfið úrslit fyrir Ægismenn sem eru þegar fallnir úr Lengjudeildinni. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum í Þorlákshöfn og ræddi við Magga eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 7 Afturelding
„Ánægður með strákana, fannst þetta mjög fagmannleg frammistaða og mér finnst þeir gefa í og gera betur en í síðustu leikjum. Þannig að ég var mjög bara ánægður með alveg frábæra liðsheild og keyrði mönnum lengi í gegn. Mér fannst þeir hafa tögl og haldir frá upphafi til enda og bara ánægður með einbeitinguna hjá okkur að klára þetta svona vel."

Afturelding leiddi 2-0 þegar flautað var til hálfleiks, en í síðari hálfleik virtist allt hrynja hjá Ægismönnum. Gestirnir gengu á lagið og refsuðu Ægi grimmilega, en tvö til þrjú mörk komu í kjölfar dýrkeyptra mistaka heimamanna. Afturelding skoraði alls fimm mörk í síðari hálfleik og vann að lokum stórsigur.

„Við náðum að skora tvö reyndar, og eitt svo sem alveg í lokin á fyrri hálfleik. Það tók tíma að brjóta þá að sjálfsögðu en við vorum búnir að eiga fullt af marktækifærum fyrstu 20 mínúturnar þannig að mér fannst svona markið liggja í loftinu og eftir að fyrsta markið kom þá fannst mér svona eiginlega engin spurning hvernig þessi leikur myndi fara. Ægismenn gerðu okkur samt erfitt fyrir, sérstaklega í fyrri hálfleik, mjög þéttir, vörðust aftarlega og var erfitt að brjóta þá en mér fannst líka bara ferskleiki í okkur að keyra út allan leikinn og í seinni hálfleik að koma svona öflugri inn í seinni hálfleik. Ég held við höfum skorað þrjú mörk á bara fyrstu 10-15 mínútum í seinni hálfleik, mjög orkumiklir inn í seinni hálfleikinn. Það var það sem kláraði leikinn endanlega."

Afturelding er með sigrinum komin aftur á topp Lengjudeildarinnar. Næst á dagskrá hjá liðinu er frestaður leikur gegn Gróttu, en honum var frestað vegna þátttöku Aftureldingar í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

„Það er leikur sem við erum búnir að bíða eftir núna í svolítinn tíma, búinn að vera mánuður síðan hann átti, áttum að spila hann og var frestað út af bikarkeppninni. Þannig aðkominn tími á það að vera á Malbiksstöðinni á Varmá á þriðjudaginn. Það er bæjarhátíðarvika í Mosfellsbæ, þannig að það væri tilvalið að byrja hana á því að mæta á völlinn. Ég get ekki lýst yfir frábærum stuðningi við fengum í Þorlákshöfn í dag. Við áttum gjörsamlega stúkuna, frábært að sjá alla þessa Mosfellinga líka og syngja ótrúlega allan leikinn og við þurfum sömu stemningu og sömu orku á Malbiksstöðinni á þriðjudaginn. Það er engin spurning og ég skora bara á alla bæjarbúa og stuðningsmenn að mæta og hjálpa okkur áfram í baráttunni. Það er lítið eftir af þessu móti og hver einasta mínúta skiptir miklu máli þannig að við þurfum að gera þetta saman og keyra áfram og ég vona að við fáum bara stemningu í bæjarhátíðarvikunni á þriðjudaginn og menn mæti á völlinn."

Sagði Maggi við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.