22.08.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Landsliðsmarkvörður Króatíu keyptur til Barcelona

Livakovic hefur nælt sér í silfur- og bronsmedalíur með Króatíu á HM.

Mynd: EPA

Spánarmeistarar FC Barcelona eru að ganga frá kaupum á króatíska landsliðsmarkverðinum Dominik Livakovic.
Börsungar borga 2 milljónir evra fyrir Livakovic og geta 2 milljónir bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur.
Livakovic er 31 árs gamall og á 79 landsleiki að baki. Hann kemur úr röðum Fenerbahce en hann lék á láni hjá Dinamo Zagreb í heimalandinu á síðustu leiktíð.
Barcelona gengur frá kaupum á Livakovic á næstunni og verður Króatinn lánaður burt frá félaginu út tímabilið. Á næstu leiktíð tekur hann svo við af Wojciech Szczesny sem varamarkvörður fyrir Joan García, þegar samningur Szczesny rennur út.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go" stimpilinn á skiptin.