22.08.26 - 11:29
Brynjar Ingi Erluson
Höfuðstöðvar Corinthians í ljósum logum í nýju tónlistarmyndbandi Depay

Memphis Depay

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Memphis Depay

Mynd: EPA
Memphis Depay, markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi, hefur gefið út nýtt lag og tónlistarmyndband þar sem hann sendir félagi sínu, Corinthians, hörð skilaboð.
Depay, sem er einn launahæsti leikmaður brasilísku deildarinnar, hefur verið ósáttur við Corinthians og sakaði félagið um að hafa svikið samkomulag þeirra um nýjan samning.
Hann samþykkti á endanum að taka á sig launalækkun og skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2028.
Hollendingurinn virðist þó ekki hafa gleymt málinu ef marka má nýtt tónlistarmyndband sem hann gaf út í gær.
Depay hefur gefið út tónlist samhliða fótboltaferlinum en í myndbandinu við lagið Don't Panic standa höfuðstöðvar Corinthians í ljósum logum á meðan hann situr í bíl og horfir á.
Myndbandið hefur vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna félagsins sem hafa boðað mótmæli vegna þess. Depay segir hins vegar að um list sé að ræða og ekkert annað búi að baki.
„Kæru stuðningsmenn Corinthians,
„Ég sé að listin sem ég gaf út í formi tónlistar hefur haft mikil áhrif. Ég vil taka fram að myndbandið var tekið upp fyrir mörgum mánuðum og er aðeins list.“
„Ég skil að mótmæli séu fyrirhuguð á morgun og allir eiga rétt á að láta skoðun sína í ljós. Túlkið skilaboðin þó ekki á rangan hátt.“
„Ég er algjörlega á móti ofbeldi og vona að mótmælin verði friðsöm þannig að fólk geti tjáð sig í rólegheitum. Ég ítreka að tónlistin mín er aðeins list.“
„Ég elska ykkur öll. Áfram Corinthians,“ skrifaði Depay á X.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.