Fotbolti.net
22.08.26 - 17:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Bragi Karl og Diouck gengu frá Völsungi

Lengjudeildin: Bragi Karl og Diouck gengu frá Völsungi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Njarðvík 4 - 0 Völsungur
1-0 Bragi Karl Bjarkason ('14 )
2-0 Oumar Diouck ('32 )
3-0 Bragi Karl Bjarkason ('51 )
4-0 Oumar Diouck ('60 )
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn: Njarðvík 4 - 0 Völsungur
Njarðvík vann öruggan sigur á Völsungi í Lengjudeildinni í dag. Njarðvíkingar vildu fá tvö víti snemma leiks. Það kom ekki að sök því Bragi Karl Bjarkason kom liðinu yfir eftir stundafjórðung.

Bragi Karl skoraði eftir mikinn darraðadans inn á teignum þar sem vörn Völsungs kom í veg fyrir tvö skot áður en Bragi náði að koma boltanum í netið.

Oumar Diouck bætti síðan öðru markinu við þegar skot hans fór af varnarmanni og í netið.

Bragi Karl bætti síðan öðru marki sínu við og þriðja marki Njarðvíkur með glæsilegu skoti vel fyrir utan vítateiginn eftir sendingu frá Diouck.

Bragi þakkaði síðan fyrir sig og lagði upp fjórða markið á Diouck sem skallaði boltann í netið og innsiglaði sigur Njarðvíkinga.

NJarðvík er í 5. sæti með 35 stig en Völsungur er í 11. sæti með 20 stig, stigi frá öruggu sæti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík19+632
6Grótta19-127
7Leiknir R.19+225
8ÍR20-525
9Vestri19-1124
10Grindavík20-1121
11Völsungur19-1220
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.