22.09.13 - 20:42
Daníel Freyr Jónsson
Paolo Di Canio fékk að fjúka (Staðfest)

Paolo Di Canio.

Mynd: Getty Images

Paolo Di Canio.

Mynd: Getty Images
Sunderland gaf út tilkynningu nú í kvöld þar sem staðfest er að félagið hafi sagt upp Ítalanum Paolo Di Canio sem stjóra liðsins. Er hann fyrsti stjórinn sem fær að fjúka í úrvalsdeildinni.
Liðið situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með einunngis eitt stig úr fimm umferðunum.
Undir stjórn Di Canio náði Sunderland að bjarga sér naumlega frá falli á síðustu leiktíð, en þrátt fyrir að versla fjölmarga leikmenn í sumar náði liðið ekki góðu gengi í upphafi leiktíðar.

Kevin Ball mun taka við stjórn Sunderland núna og stýra liðinu þar til næsti stjóri hefur ráðinn. Hann mun stýra liðinu í fyrsta sinn gegn Peterborough í deildabikarnum á þriðjudag.