Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. september 2019 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Greenwood veikur og Pogba nýbyrjaður að æfa aftur
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, ræddi við Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United, fyrir leikinn gegn West Ham sem hefst klukkan 13:00.

Búið er að tilkynna byrjunarliðin fyrir leikinn. Solskjær stillir upp sama byrjunarliði og gegn Leicester um síðustu helgi.

Mason Greenwood, sem skoraði sigurmarkið gegn Astana í Evrópudeildinni í vikunni, er ekki í leikmannahópnum. Hann er veikur.

„Mason Greenwood er veikur - hann hefur verið með hálskirtlabólgu. Vonandi er það ekki of slæmt," sagði Solskjær um hinn 17 ára gamla Greenwood.

Solskjær ræddi einnig um Paul Pogba sem er frá vegna meiðsla.

„Vonandi verður hann til í bikarleikinn í vikunni. Hann er nýbyrjaður að æfa aftur."
Athugasemdir
banner