Pámi Rafn Pálmason og Óskar Örn Hauksson, leikmenn Íslandsmeistaraliðs KR, virkuðu hressir á mynd sem Pámi birti á Twitter nú rétt í þessu.
Pálmi Rafn og Óskar Örn eru báðir fæddir 1984 en Óskar varð 35 ára í ágúst á meðan Pámi fagnar 35 ára afmæli sínu í nóvember og komnir á seinni árin í boltanum.
Þeir voru mikilvægir í frábærum sigri KR á Íslandsmeistaramótinu en titillinn var tryggður eftir 1-0 sigurinn á Val í síðustu umferð.
Pámi birti mynd af sér og Óskari á Twitter fyrir utan elliheimilið Grund en hægt er að sjá myndina hér fyrir neðan.
Elliheimilið Grund 🏆 pic.twitter.com/QmGsD7GsOA
— Palmi Rafn Palmason (@palmirafn) September 22, 2019
Athugasemdir