Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 22. september 2021 12:01
Elvar Geir Magnússon
Á þá ósk að sjá Ronaldo spila aftur fyrir Sporting áður en hún fer yfir móðuna miklu
Dolores Aveiro ásamt Cristiano yngri, syni Ronaldo.
Dolores Aveiro ásamt Cristiano yngri, syni Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Dolores Aveiro, móðir Cristiano Ronaldo, á sér þá ósk að sjá son sinn spila aftur fyrir Sporting Lissabon áður en hún deyr.

Ronaldo fór til Manchester United í sumar og þessi 36 ára leikmaður hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjunum fyrir liðið.

Margir hafa búist við því að United verði síðasta félag Ronaldo en mamma hans er með aðrar hugmyndir. Hún er mikill aðdáandi Sporting Lissabon en þar lék Ronaldo sína fyrstu aðalliðsleiki á ferlinum.

„Ronaldo verður að koma til baka. Ef ég fengi að ráða væri hann kominn hingað nú þegar! Hann horfir reglulega á Sporting leiki," sagði Aveiro í viðtali í Portúgal.

„Ég hef sagt við hann: 'Sonur, áður en ég dey þá vil ég sjá þig snúa aftur til Sporting!' Hann sagði 'sjáum til'."
Athugasemdir
banner
banner
banner