Fotbolti.net
22.09.22 - 12:07
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Umboðsmenn undrabarnsins Endrick funda með Barcelona

Umboðsmenn undrabarnsins Endrick funda með Barcelona
Canon

Mynd: Instagram

Endrick Felipe er nafn sem mörg stór félög í Evrópu þekkja vel en þessi 16 ára leikmaður Palmeiras í Brasilíu hefur svakalega hæfileika og talað er um hann sem undrabarn.
Spænska blaðið Sport segir að Barcelona og Real Madrid vilji bæði tryggja sér leiknanninn unga og að Börsungar hafi fundað með umboðsmönnum hans í vikunni.

Umboðsmönnumum var flogið frá Sao Paulo til að ræða möguleg kaup. Strákurinn hefu ekki enn spilað með aðalliði Palmeiras en verið á bekknum.

Í sumar skrifaði hann undir fyrsta atvinnumannasamning sinn við félagið og er sagt að 32 milljóna evra riftunarákvæði sé í honum.

Barcelona vonast til að ná samkomulagi um að Endrick gangi í raðir félagsins 2024, eftir að hann verður 18 ára gamall. Helsti keppinauturinn um strákinn er ekki talinn vera Real Madrid heldur franska stórliðið Paris Saint-Germain.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.