22.10.13 - 16:40
Magnús Már Einarsson
Liverpool lánar Wisdom til Derby (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur ákveðið að lána varnarmanninn Andre Wisdom til Derby County.
Hinn tvítugi Wisdom hefur komið við sögu í þremur leikjum á þessu tímabili.
Samtals hefur Wisdom skorað eitt mark í 22 leikjum með aðalliði Liverpool síðan hann þreytti frumraun sína í byrjun síðasta tímabils.

Derby er í áttunda sæti í ensku Championship deildinni en Steve McClaren tók við liðinu á dögunum.
Heimild: Heimasíða Liverpool