Fotbolti.net
22.10.13 - 22:39
Elvar Geir Magnússon

Rúnar Páll tekinn við Stjörnunni (Staðfest)

Rúnar Páll Sigmundsson er nýr þjálfari Stjörnunnar.

Rúnar Páll Sigmundsson er nýr þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson er formlega orðinn þjálfari Stjörnunnar og tekur við starfinu af Loga Ólafssyni sem látinn var fara eftir liðið tímabil.
Stjarnan náði sínum besta árangri í efstu deild á liðnu tímabili, hafnaði í þriðja sæti og verður í Evrópukeppni á næsta ári. Þá komst liðið í úrslit bikarsins en tapaði þar annað árið í röð.

Fréttatilkynning Stjörnunnar:
Rúnar Páll Sigmundsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Stjörnunnar um þjálfun meistaraflokks karla hjá félaginu.

Rúnar Páll er félaginu að góðu kunnur bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann var aðstoðarþjálfari hjá félaginu á nýliðinni leiktíð og gerði einnig 2.flokk félagsins að Íslandsmeisturum. Rúnar Páll hefur áður þjálfað meistaraflokk m.a. hjá HK og Levanger í Noregi. Rúnar Páll er hæfileikaríkur og vel menntaður þjálfari og er það mikið ánægjuefni að fá hann til starfans.

Það eru spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni enda hefur góður árangur náðst á undanförnum árum. Markmiðið er að byggja enn frekar ofan á þann góða grunn sem er til staðar hjá félaginu.

Félagið hefur metnað til að viðhalda sterkum leikmannahópi þannig að liðið festi sig í sessi sem eitt af toppliðunum á landinu. Þá er lögð áhersla á að vinna markvisst í að auka færni og getu yngri leikmanna þannig að sem flestir þeirra nái markmiðum sínum um að verða góðir knattspyrnumenn.

Rúnar Páll mun, ásamt sínu teymi, sinna þjálfun liðsins auk þess að leiða faglega uppbyggingu félagsins til næstu ára í samstarfi við stjórn og aðra þjálfara hjá félaginu.
Rúnar Páll tekinn við Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.