Fotbolti.net
22.10.15 - 15:19
Elvar Geir Magnússon

Ásgeir tekur við Djúpmönnum (Staðfest)

Ásgeir við undirskriftina.

Ásgeir við undirskriftina.

Canon

Mynd: BÍ/Bolungarvík

BÍ/Bolungarvík hefur samið við Ásgeir Guðmundsson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Ásgeir hefur áður komið að þjálfun liðsins. Hann var aðstoðarmaður Guðjóns Þórðarsonar árið 2011 og síðan aðstoðarmaður hjá Jörundi Áka Sveinssyni næstu þrjú ár þar á eftir.

Í sumar tók Ásgeir sér frí frá þjálfun en ætlar að taka slaginn á næsta ári í 2. deild en Djúpmenn féllu úr 1. deild í ár.

Ásamt þessari ráðningu er félagið einnig í viðræðum við erlendan þjálfara sem mun þá starfa við hlið Ásgeirs samkvæmt heimasíðu Djúpmanna. Félagið reiknar með að tilkynna það fljótlega ef að verður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.