Fotbolti.net
22.10.15 - 06:30
Arnar Geir Halldórsson

Bergrós Lilja í Val (Staðfest)

Bergrós Lilja Jónsdóttir

Bergrós Lilja Jónsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Bergrós Lilja Jónsdóttir er gengin til liðs við Pepsi deildar lið Vals en hún kemur til félagsins frá Þrótti sem féll úr Pepsi deildinni síðasta sumar.
Bergrós er 18 ára gömul og leikur í stöðu miðvarðar en hún á 14 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Hún hefur spilað 62 meistaraflokksleiki fyrir Þrótt en hún lék 17 deildarleiki með liðinu á síðustu leiktíð.

„Valur hefur frábæra aðstöðu, umgjörin í kringum liðið er góð og hópurinn spennandi. Ég vil að taka þátt í toppbaráttu með Val og vonandi spilar liðið hraðan og góðan fótbolta. Sem leikmaður er ég yfirveguð, jákvæð og metnaðarfull\", sagði Bergrós í samtali við heimasíðu félagsins.

Valur endaði í 7.sæti Pepsi deildarinnar á síðustu leiktíð.

Heimild: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.