Fotbolti.net
22.10.15 - 16:15
Elvar Geir Magnússon

Sito í Fylki (Staðfest) - Gerði eins árs samning

Sito í Fylki (Staðfest) - Gerði eins árs samning
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spænski sóknarleikmaðurinn Sito er formlega genginn í raðir Fylkis en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Árbæjarfélagið hefur gefið frá sér.

Sito hefur mikið verið í fréttum undanfarna daga eftir að ÍBV tilkynnti að félagið myndi kæra Fylki til KSÍ. Eyjamenn saka Árbæinga um að hafa rætt og samið ólöglega við Sito.
Fréttatilkynning Fylkis:
Jose Enrique Seoane Vergara „Sitó“ hefur skrifað undir eins árs samning við Fylki.

Sitó er 26 ára, fæddur á Spáni og hefur spilað með liðum bæði á Spáni og í Bandaríkjunum.

S.l. keppnistímabil spilaði Sitó með ÍBV í Pepsi-deildinni og skoraði sex mörk í ellefu leikjum.

Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis lýsir yfir mikilli ánægju að Sitó sé genginn til liðs við Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.