Í dag er fyrsti leikdagur í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Það er leikið í öllum riðlum og verða fjórir leikir sýndir í beinni á sportrásum Stöð 2.
Klukkan 16:55 verður flautað til leiks í Vín í Austurríki þar sem Rapíd tekur á móti Arsenal. Nágrannar Arsenal eiga heimaleik gegn LASK, sem er einnig frá Austurríki, klukkan 19:00.
Rúnar Alex Rúnarsson er varamarkvörður Arsenal og hann gæti mögulega spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í dag.
Það eru þrjú önnur Íslendingalið í eldlínunni. Sverrir Ingi Ingason leikur með PAOK sem tekur á móti Omonia Nicosia, Albert Guðmundsson spilar með AZ Alkmaar sem mætir Napoli og Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon eru á mála hjá CSKA Mosvku, sem mætir Wolfsberger frá Austurríki. Arnór spilar ekki með í dag vegna meiðsla.
Hér að neðan má sjá alla leiki dagsins.
fimmtudagur 22. október
EUROPA LEAGUE: Group B
16:55 Dundalk - Molde
16:55 Rapid - Arsenal (Stöð 2 Sport 4)
EUROPA LEAGUE: Group A
16:55 CSKA Sofia - Cluj
16:55 Young Boys - Roma
EUROPA LEAGUE: Group C
16:55 Hapoel Beer Sheva - Slavia Prag
16:55 Leverkusen - Nice
EUROPA LEAGUE: Group D
16:55 Standard - Rangers
16:55 Lech - Benfica
EUROPA LEAGUE: Group E
16:55 PSV - Granada CF
16:55 PAOK - Omonia
EUROPA LEAGUE: Group F
16:55 Rijeka - Real Sociedad
16:55 Napoli - AZ (Stöð 2 Sport 2)
EUROPA LEAGUE: Group G
19:00 Braga - AEK
19:00 Leicester - Zorya
EUROPA LEAGUE: Group H
19:00 Sparta Prag - Lille
19:00 Celtic - Milan (Stöð 2 Sport 4)
EUROPA LEAGUE: Group I
19:00 Maccabi Tel Aviv - Qarabag
19:00 Villarreal - Demir Grup Sivasspor
EUROPA LEAGUE: Group J
19:00 Tottenham - LASK Linz (Stöð 2 Sport 2)
19:00 Ludogorets - Antwerp
EUROPA LEAGUE: Group K
19:00 Wolfsberger AC - CSKA
19:00 Dinamo Zagreb - Feyenoord
EUROPA LEAGUE: Group L
19:00 Liberec - Gent
19:00 Hoffenheim - Rauða stjarnan
Athugasemdir