Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. október 2021 11:12
Elvar Geir Magnússon
Siggi Raggi einn aðalþjálfari Keflavíkur - Haraldur aðstoðar (Staðfest)
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðalþjálfari Keflavíkur.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðalþjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að Sigurður Ragnar Eyjólfsson verði einn aðalþjálfari Keflavíkur en Eysteinn Húni Hauksson sem var aðalþjálfari með honum hefur látið af störfum hjá meistaraflokknum.

Haraldur Freyr Guðmundsson, sem hefur þjálfað Reyni Sandgerði undanfarin ár, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar.

„Eysteinn og Sigurður Ragnar komu Keflavíkurliðinu upp úr Lengjudeildinni í fyrra og héldu liðinu í deildinni á liðnu sumri. Eysteinn Húni starfar ennþá hjá yngri flokkum Keflavíkur og er í viðræðum við félagið um stærra hlutverk í afreksstarfi félagsins," segir í tilkynningu Keflavíkur.

„Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður aðalþjálfari félagins en hann hefur verið þjálfari liðsins ásamt Eysteini síðan í lok árs 2019. Sigurður hefur mikla reynslu af þjálfun, en hann náði eftirtektarverðum árangri með íslenska kvennalandsliðið á sínum tíma og hefur einnig þjálfað í Kína og Noregi auk félagsliða á Íslandi."

Fjölmiðlar höfðu talað um það í sumar að samvinna Sigurðar og Eysteins væri ekki hnökralaus og í nokkurn tíma talað um að Sigurður tæki einn við sem aðalþjálfari.

„Knattspyrnudeildin er spennt fyrir því að fá Harald aftur til félagsins enda sannur Keflvíkingur sem brennur fyrir hag félagsins og þekkir innviði þess betur en flestir. Miklar væntingar eru gerðar til liðsins á næstu árum og er stefnan sett á að festa Keflavík í deild þeirra bestu og byggja upp knattspyrnumenn til framtíðar sem muni mynda hjartað í liðinu til næstu ára."

Keflavík hafnaði í 10. sæti efstu deildar í sumar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner